Fótboltaæfingar fyrir öll börn sem ekki geta nýtt sér hefðbundið barna- og unglingastarf sinna félaga.
Fótbolti fyrir alla er að hefja göngu sína aftur.
Nýtt námskeið hefst sunnudaginn 29. janúar og stendur yfir í sjö vikur, til 11. mars.
Við hittumst alla sunnudaga milli kl. 11.30 og 12.30 í Íþróttamiðstöðinni Ásgarði í Garðabæ.
Íslandsmeistararnir Ásgerður og Gunnhildur Yrsa þjálfa.
Námskeiðið kostar aðeins 3.000 kr. Við bjóðum öll börn velkomin og vonumst til að sjá sem flesta.
Skráning í tölvupóstföngum yr@lsh.is og gunnhildurj09@ru.is