Stefna Sjónarhóls
Samþykkt á fundi um innra starf 3. sept. 2003
Starfsemi
Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Sjónarhóll er rekinn af sjálfseignarstofnuninni Í góðum höndum sem er með sjálfstæðan fjárhag og stjórn. Að starfseminni standa ADHD samtökin, Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum. Félögin og samtökin sem standa að Sjónarhóli vinna öll að réttindamálum fjölskyldna barna með sérþarfir hvert á sínu sviði.
Markhópur Sjónarhóls
Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir um allt land.
Leiðarljós
Að veita foreldramiðaða ráðgjafarþjónustu með áherslu á styðjandi og jákvætt viðmót og virðingu þannig að þarfir fjölskyldna verði í brennidepli.
Markmið
Markmið Sjónarhóls er að veita foreldrum stuðning í hlutverki sínu.
Starfssvið
Ráðgjafar Sjónarhóls:
- Gæta hagsmuna fjölskyldna barna með sérþarfir sem leita til Sjónarhóls.
- Eru óháðir ákveðnum stofnunum.
- Búa yfir heildaryfirsýn um málefni barna með sérþarfir og fjölskyldna þeirra.
- Hafa víðtæka reynslu og þekkingu á fjölþættum þörfum og aðstæðum fjölskyldna barna með sérþarfir.
Helstu áherslur í starfi Sjónarhóls:
- Að kynna foreldrum réttindi sín til þjónustu samfélagsins og vísa þeim á leiðir til að fá notið þeirra.
- Að aðstoða fjölskyldur við að finna úrræði og fá þjónustu.
- Að vera til staðar og veita málum eftirfylgd þar til þau eru komin í ákveðinn farveg sé þess óskað.
- Að greiða foreldrum og öðrum aðstandendum leið að upplýsingum um viðkomandi sjúkdóm, fötlun eða þroskafrávik.
- Að stuðla að miðlun upplýsinga frá foreldri til foreldris.
- Að stuðla að aukinni þekkingu í samfélaginu á hinum ýmsu sjúkdómum og fötlunum.
- Að vinna með þeim stofnunum og félagasamtökum sem koma að málefnum fjölskyldna og tengja þjónustuúrræði.
- Að stuðla að þróun úrræða í samstarfi við ýmsar stofnanir og félagasamtök.
Sjónarhóll starfar með:
Félagasamtökum, stofnunum, fagfólki og öðru áhugasömu fólki sem sinnir málefnum barna með sérþarfir.
Leiðir
Sjónarhóll hyggst ná markmiðum sínum m.a. með því að:
- Veita ráðgjöf í síma, með tölvupósti eða með viðtölum á fundum eftir því sem við á hverju sinni.
- Koma á samstarfi foreldra, mismunandi fagaðila og stuðningsaðila í hverju tilfelli eftir því sem við á.
- Gefa út fræðsluefni í samstarfi við aðildarfélögin.
- Standa að námskeiðum í samstarfi við aðildarfélögin.
- Halda úti öflugri heimasíðu með virkum upplýsingum.
- Efla innbyrðis tengsl foreldra sem búa við svipaðar aðstæður.