Engilráð fæst í Hagkaupum
Sjónarhóll hefur í samstarfi við Hagkaup látið framleiða Engilráð sem tuskudýr. Tuskudýr geta örvað tilfinningaþroska barna. Þau geta hjálpað þeim að tjá tilfinningar og verið til huggunar og uppörvunar á erfiðum augnablikum.
Engilráðartuskudýr eru upplagðar páska- eða sumargjafir. Tuskudýrin fást í verslunum Hagkaupa og kostar Engilráðar handbrúðan 1.999 kr. Hluti af ágóða sölunnar rennur til Sjónarhóls.
 |
| Tuskudýrið Engilráð |