Hæ,
Uppáhaldslögin mín eru faðmlög og ég syng oft lag sem ég kalla faðm-lagið en meðan maður syngur það er mjög gott að faðma vini sína, eða bara mömmu og pabba. Það er létt að læra textann
– reyndu ...
Faðm-lagið
Smelltu hér til að hlusta á lagið
|
Knúsaðu mig – já kysstu mig,
kreistu mig svolítið.
Faðmaðu mig – ég faðma þig
feikn er lífið skrýtið.
Við endurnar erum ást-ríkar
(og) ótrúlega sérstakar.
Óvart erum engum líkar
eiginlega einstakar.
Vængbrotin víst ég er
voða lítil oft,
veistu samt ég víða fer
um vatn, grund og loft.
|
Hjarta mitt og hjarta þitt,
hjörtun taktinn slá.
Leikurðu ekki ljósið mitt
af lífsins gleði og þrá.
Elskum, virðum og vonum heitt
veröldina bætum,
við fáum flestu í heimi breytt
full kærleikanum sætum.
Vængbrotin víst ég er
voða lítil oft,
veistu samt ég víða fer
um vatn, grund og loft.
|